Velur Wolves fram yfir Chelsea

Úlfarnir fá brasilískan bakvörð.
Úlfarnir fá brasilískan bakvörð. AFP/Darren Staples

Knattspyrnumaðurinn ungi Pedro Lima er á leiðinn til Wolves frá brasilíska félaginu Sport Recife. 

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greindi frá fyrir nokkrum dögum að Lima væri á leiðinni til Chelsea. 

Nú er hins vegar ljóst að hann fari til Wolves en Lima er 17 ára gamall bakvörður. Brasilíska félagið gaf frá sér yfirlýsingu að Lima væri á leiðinni til Wolves. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert