Aston Villa hefur staðfest sölu félagsins á Douglas Luiz til ítalska liðsins Juventus. Samuel Iling Junior og Enzo Barraneechea fara í hina áttina.
Hinn 26 ára gamli Douglas Luiz var lykilmaður á miðju Aston Villa í vetur þegar liðið náði sínum besta árangri í áraraðir. Villa hafnaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tryggði sér þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu.
Aston Villa keypti Luiz frá Manchester City árið 2019 en Juventus mun borga fimmtíu milljónir evra fyrir leikmanninn. Kantmaðurinn Iling Junior og miðjumaðurinn Barraneechea verða keyptir til Villa fyrir 22 milljónir samanlagt og eru ekki hluti af kaupverði Luiz.
Aston Villa can confirm that Douglas Luiz has joined Juventus. 🟣
— Aston Villa (@AVFCOfficial) June 30, 2024