Brentford fékk tilboð sitt í Archie Gray, miðjumann Leeds, samþykkt í gær en leikmaðurinn hefur hafnað félaginu. Tottenham undirbýr nú tilboð í leikmanninn.
David Ornstein hjá NY Times greinir frá því að innan herbúða Tottenham séu menn bjartsýnir á að landa Gray. Brentford reyndi að flýta félagaskiptunum og gekkst miðjumaðurinn, sem er átján ára gamall, undir læknisskoðun hjá þeim röndóttu í gær.
Gray hafði upphaflega samþykkt samingstilboð Brentford en áður en hann skrifaði undir samninginn er talið að Tottenham hafi náð til hans og Gray snerist hugur. Nú er umboðsmaður Gray í viðræðum við Tottenham að sögn Ornstein.