Viktor Bjarki Daðason lék sinn síðasta leik fyrir Fram gegn Víking í gær en samningur hans við FC Kaupmannahöfn tekur gildi í dag.
Framherjinn ungi kom við sögu í níu leikjum á tímabilinu og skoraði eitt mark en hann kom inn af varamannabekknum fimmtán mínútum fyrir leikslok í 2:1 tapi Fram á Víkingsvelli í gær.
Jannik Pohl, framherjinn sterki, spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Fram síðan í fyrstu umferð deildarinnar en hann hefur verið meiddur.
Viktor Bjarki er þriðji yngsti markaskorari í sögu efstu deildar á Íslandi og sá fimmti yngsti til að spila í deildinni frá upphafi.