Enska knattspyrnufélagið Chelsea keypti í dag átján ára Spánverja, Marc Guiu, af Barcelona fyrir fimm milljónir punda.
Guiu lék þrjá leiki með Barcelona í spænsku 1. deildinni í vetur og skoraði eitt mark, og skoraði jafnframt eitt mark í tveimur leikjum í Meistaradeild Evrópu. Hann er uppalinnn hjá félaginu og spilaði aðallega með varaliði Barcelona á síðasta tímabili.
Guiu er sóknarmaður sem skoraði tíu mörk fyrir U17 ára landslið Spánar.