Stór nöfn á förum frá Liverpool

Thiago Alcantara er á förum frá Liverpool.
Thiago Alcantara er á förum frá Liverpool. AFP/Glyn Kirk

Tíu leikmenn eru á förum frá Liverpool en samningar þeirra eru útrunnir. Meðal þeirra eru Joel Matip og Thiago Alcantara.

Matip sleit krossband í byrjun síðasta tímabils en hann fær ekki nýjan samning hjá félaginu. Matip myndaði afar sterkt samband við Virgil Van Dijk í vörn liðsins undir stjórn Jürgen Klopp en þýski Kamerúninn verður 33 ára í ágúst.

Thiago gekk til liðs við Liverpool frá Bayern München og er jafn gamall Matip en fjögurra ára ferill hans hjá Liverpool hefur verið sveiflukenndur vegna ítrekaðra meiðsla. 

Aðrir leikmenn sem yfirgefa Liverpool eru Adam Lewis, Melkamu Frauendorf, Mateusz Musialowski, Nathan Giblin, Francis Gyimah, Luke Hewitson, Niall Osborne og Cody Pennington.

Adam Lewis, Melkamu Frauendorf og Mateusz Musialowski hafa allir leikið fyrir aðallið félagsins en þurfa nú að leita sér að nýju liði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert