Enski knattspyrnumaðurinn Max Kilman er á leiðinni frá Wolves og til West Ham.
Kilman hefur verið frábær í liði Wolves undanfarin ár en West Ham mun greiða Wolves 40 milljónir punda eða 7 milljarða íslenskra króna fyrir varnarmanninn.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá en Julen Lopategui, nýi knattspyrnustjóri West Ham, þjálfaði Kilman áður hjá Wolves.