Á förum frá Manchester City

Sergio Gómez er á förum frá Manchester City.
Sergio Gómez er á förum frá Manchester City. AFP/Paul Ellis

Spænski knattspyrnumaðurinn Sergi Gómez er á förum frá Englandsmeisturum Manchester City og á leiðinni til Real Sociedad í heimalandinu. 

Manchester City fær níu milljónir evra fyrir bakvörðinn samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.

Gómez gekk til liðs við Manchester City frá Anderlecht í ágúst árið 2022 en hann hefur verið í aukahlutverki hjá liðinu og aðeins spilað 38 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert