Sky Sports hefur beðið enska knattspyrnufélagið Nottingham Forest afsökunar á ummælum sparkspekingsins Gary Neville í garð þess.
Neville, sem er fyrrverandi leikmaður og fyrirliði Manchester United, hraunaði yfir Nottingham Forest eftir leik liðsins gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í vor.
Forest gaf frá sér yfirlýsingu eftir leikinn þar sem félagið gagnrýndi dómara leiksins harðlega. Það fór illa í Neville sem las félaginu pistilinn.
Í dag gaf Sky Sports frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að stöðin hafi talað við Neville og að hann muni ekki nota slíkan talsmáta aftur. Í leiðinni bað Sky Sports Nottingham Forest afsökunar.