Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur formlega tilkynnt Bologna að það ætli að borga klásúlu Joshua Zirkzee. Þessu greinir félagsskiptasérfræðingurinn Gianluca Di Marzio frá á reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X.
Talið er að klásúlann í samning Zirkzee sé 34 milljónir punda.
Hollendingurinn átti frábært tímabil með Bologna. Hann skoraði þar 11 mörk er liðið endaði í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar og tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Manchester United og Zirkzee hafa náð samkomulagi um launakjör.
🔴 @ManUtd have now formally informed @Bolognafc1909 that they are going to pay Joshua #Zirkzee's release clause. @SkySport
— Gianluca Di Marzio (@DiMarzio) July 7, 2024