Enska knattspyrnufélagið Nottingham Forest tilkynnti í dag nýjan leikmann, Carlos Miguel, frá brasilíska liðinu Corinthians.
Miguel er 25 ára markmaður, 204 sentimetrar á hæð, og skrifaði undir samning til júní 2028 en hann er að bíða eftir atvinnuleyfi.
Hann átti frábært tímabil í Brasilíu á síðasta tímabili þar sem hann hélt 14 sinnum hreinu í 25 leikjum fyrir félagið. Hann er uppalinn hjá Flamengo en hefur einnig spilað með Internacional, Santa Cruz og Boa Esporte.
He's here 🇧🇷 pic.twitter.com/lMU64Bz8qR
— Nottingham Forest (@NFFC) July 9, 2024