Arsenal hefur hafnað tilboði Fulham í enska knattspyrnumanninn Emile Smith-Rowe.
Enskir miðlar greina frá en Fulham íhugar nú að bjóða aftur í sókndjarfa miðjumann Arsenal og er hann efstur á óskalista félagsins.
Smith-Rowe, sem er 23 ára gamall, er uppalinn hjá Arsenal og var í stóru hlutverki tímabilið 2021 til 2022.
Síðan þá hafa meiðsli haft áhrif á spilatíma hans hjá félaginu og var hann í litlu hlutverki á síðustu leiktíð.