Oliver Glasner, knattspyrnustjóri karlaliðs Crystal Palace, er sagður vera mjög spenntur fyrir Emile Smith Rowe leikmanni Arsenal.
Enskir miðlar greina frá en samkvæmt þeim mun Crystal Palace bjóða í enska leikmanninn á næstunni.
Arsenal hafnaði tilboði Fulham í miðjumanninn fyrr í mánuðinum en hann er eftirsóttur af mörgum liðum í ensku deildinni.
Smith Rowe er uppalinn hjá Arsenal og var lykilmaður í liðinu tímabilið 2021 til 2022 en hann hefur verið mestmegnis meiddur síðan.