Belgíski knattspyrnumaðurinn Amadou Onana er í læknisskoðun hjá Aston Villa.
Hann mun ganga til liðs við Aston Villa frá Everton þar sem hann hefur verið í tvö ár.
Aston Villa mun greiða Everton 50 milljónir punda fyrir miðjumanninn en hann spilaði 72 leiki fyrir Everton og var lykilmaður hjá liðinu.
Á næsta tímabili verður Aston Villa með í Meistaradeildinni og hefur nú þegar verið að styrkja hópinn fyrir þau átök.