Fulham er búið að ná samkomulagi við Arsenal um kaup á enska knattspyrnumanninum Emile Smith Rowe.
Enskir miðlar greina frá en félögin eiga nú aðeins eftir að ganga frá pappírum og þá getur Smith Rowe gengið í raðir Fulham.
Fulham mun greiða Arsenal 27 milljónir en auk þess geta sjö milljónir bæst við með árangurstengdum greiðslum.
Smith Rowe er uppalinn hjá Arsenal og var í stóru hlutverki fyrir árið 2022 en þá meiddist hann.