Brasilíski knattspyrnumaðurinn Igor Thiago, sem kom til enska úrvalsdeildarliðsins Brentford frá Club Brugge í Belgíu í sumar, er meiddur og verður frá þar til í lok árs.
Thiago skrifaði undir fimm ára samning við Brentford í sumar en meiddist í 5:2-sigri liðsins gegn AFC Wimbledon 20. júlí og þurfti að fara í aðgerð á hné.
Hann er 23 ára gamall og átti að koma inn í stað Ivan Toney sem er mögulega á förum frá félaginu en ekkert hefur verið staðfest.