Þýski markaskorarinn Niclas Füllkrug er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United.
Þetta staðfesti félagið í dag.
Framherjinn skrifar undir fjögurra ára samning við West Ham en hann kemur til liðsins frá Borussia Dortmund á 27,5 milljónir punda. Füllkrug fór frá Werder Bremen á síðasta ári og til Dortmund þar sem hann skoraði 15 mörk í 43 leikjum.
East London’s newest forward, Niclas Füllkrug ⚒️ pic.twitter.com/QyGGR4WZfR
— West Ham United (@WestHam) August 5, 2024