Manchester United og Fulham mætast í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Old Trafford í Manchester klukkan 19.
Einn nýliði er í byrjunarliði United en bakvörðurinn Noussair Mazraoui, sem Manchester-félagið fékk frá Bayern München á dögunum, spilar sinn fyrsta leik á Englandi.
Matthijs de Ligt sem kom einnig frá Bayern byrjar á bekknum, eins og Joshua Zirkzee sem kom til United frá Bologna á Ítalíu í sumar.
Byrjunarlið Manchester United:
Mark: André Onana.
Vörn: Diogo Dalot, Harry Maguire, Lisandro Martínez, Noussair Mazraoui.
Miðja: Kobbie Mainoo, Mason Mount, Casemiro.
Sókn: Amad Diallo, Bruno Fernandes, Marcus Rashford.