Enski knattspyrnumaðurinn Cameron Archer er genginn til liðs við Southampton.
Hann kemur til félagsins frá Aston Villa en Southampton, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, kaupi framherjann á 15 milljónir punda.
Archer skrifar undir fjögurra ára samning hjá Southampton en liðið mætir Newcastle á útivelli í fyrsta leik tímabilsins á morgun.