Aston Villa lagði West Ham United, 2:1, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag á Ólympíuvellinum í Lundúnum.
Belginn Amadou Onana kom Aston Villa yfir á fjórðu mínútu. Það gerði hann með föstum skalla eftir góða hornspyrnu frá Youri Tielemans.
Brasilíumaðurinn Lucas Paqueta jafnaði metin með marki frá vítapunktinum á 37. mínútu.
Varamaðurinn Jhon Durán reyndist hetja Aston Villa er hann skoraði sigurmarkið á 79. mínútu með góðri afgreiðslu.
Mörkin urðu ekki fleiri og Aston Villa hreppti stigin þrjú í Lundúnum.