Aston Villa hafði betur gegn West Ham, 2:1, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Ólympíuvellinum í Lundúnum í dag.
Amadou Onana og Jhon Durán skoruðu mörk Aston Villa en Lucas Paqueta skoraði mark West Ham.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.