Brasilíumaðurinn Danilo, leikmaður Nottingham Forest, fór snemma af velli eftir að hafa brotið ökklann sinn í 1:1 jafntefli Nottingham Forest og Bournemouth í gær.
Hinn 23 ára gamli Danilo lenti illa eftir skallabaráttu við Antoine Semenyo, leikmann Bournemouth. Danilo fékk aðhlynningu í níu mínútur á meðan starfsmenn félagsins skýldu honum með teppi. Hann var síðar fluttur á sjúkrahús.
Danilo snéri heim síðar um kvöldið og birti færslu á Instagram reikning sínum.
„Hæ öll, ég vildi bara láta vita að ég er í lagi, þakka guði, og ég er kominn heim. Ég sný aftur bráðlega og takk fyrir allan stuðninginn í skilaboðum,“ sagði Danilo á Instagram reikning sínum