Enski knattspyrnumaðurinn Ivan Toney er ekki í hóp Brentford í fyrsta leik liðsins á tímabilinu gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.
Toney hefur verið orðaður við lið víða í heiminum, meðal annars Al-Ahli frá Sádi-Arabíu.
„Það er ýmislegt í gangi með Ivan [Toney], það er áhugi á félagaskiptamarkaðnum. Vegna þess höfum við ákveðið að hafa hann ekki í hóp í dag,“ sagði Thomas Frank, stjóri Brentford í viðtali við Sky Sports fyrir leik.
Frank sagðist ekki vita hvort við myndum sjá Toney aftur í Brentford treyju.
„Hver veit? Það er áhugi en það er ekkert nálægt því að ganga í gegn,“ sagði Frank.
Brentford er með 1:0 forystu gegn Crystal Palace þegar þessi frétt er skrifuð.