Nýr fyrirliði Newcastle

Bruno Guimaraes er nýr fyrirliði Newcastle United.
Bruno Guimaraes er nýr fyrirliði Newcastle United. AFP/Andy Buchanan

Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes er nýr fyrirliði karlaliðs Newcastle United í knattspyrnu.

Daily Mail greinir frá en Guimaraes var með fyrirliðabandið í fyrsta sinn um liðna helgi þegar Newcastle vann Southampton 1:0 í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann var áður þriðji fyrirliði á eftir Jamaal Lascelles og Kieran Trippier, sem verður áfram varafyrirliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert