Mohamed Salah setti met á laugardaginn þegar hann skoraði síðara mark Liverpool í 2:0-sigri á Ipswich Town. Enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg mörk og Egyptinn í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Salah hefur skorað níu mörk í fyrstu umferð síðan hann gekk til liðs við Liverpool sumarið 2017. Salah fer upp fyrir Frank Lampard, Alan Shearer og Wayne Rooney en ensku goðsagnirnar skoruðu átta mörk í fyrstu umferð á sínum ferlum.
Myndband af mörkum Salah í fyrstu umferð í gegnum tíðina má sjá í spilaranum hér að ofan.
No-one starts a Premier League season better than @MoSalah 👑#IPSLIV | #TheKickOff pic.twitter.com/ndXNCLLXy2
— Premier League (@premierleague) August 17, 2024