Enska knattspyrnufélagið Wolverhampton Wanderers hefur lagt fram lánstilboð í enska markvörðinn Aaron Ramsdale, leikmann Arsenal.
BBC Sport greinir frá því að tilboð Úlfanna sé lánssamningur út nýhafið tímabil með möguleika á kaupum að því loknu.
Ramsdale er 26 ára gamall og var aðalmarkvörður hjá Skyttunum um tveggja ára skeið áður en David Raya var fenginn til félagsins síðasta sumar og hrifsaði stöðuna af honum.