Spænski knattspyrnumaðurinn Álex Moreno er á leiðinni til Nottingham Forest á lánssamningi frá Aston Villa.
Enski miðlar greina frá en það verður kaupákvæði í samningi Moreno en hann lék 48 leiki fyrir Aston Villa á einu og hálfu ári hjá félaginu.
Síðan Hollendingurinn Ian Maatsen kom til Villa frá Chelsea í sumar hefur hlutverk Spánverjans, sem er 31 árs gamall, minnkað.