Nýi maðurinn ekki með Tottenham á morgun

Dominic Solanke verður ekki með Tottenham um helgina.
Dominic Solanke verður ekki með Tottenham um helgina. AFP/Darren Staples

Dominic Solanke verður ekki með Tottenham þegar að liðið fær Everton í heimsókn í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á morgun. 

Þetta staðfesti Ange Postecoglou stjóri Tottenham á blaðamannafundi í dag. 

Solanke meiddst aðeins í fyrsta leik Tottenham á tímabilinu gegn Leicester síðastliðinn mánudag. Þeim leik lauk með jafntefli, 1:1. 

Þá verður Rodrigo Bentancur ekki með Tottenham heldur en hann lenti í höfuðmeiðslum gegn Leicester. 

Yves Bissouma snýr aftur í hópinn hjá Tottenham en hann var í agabanni í fyrsta leik eftir að myndband birtist af honum vera að anda að sér hlátursgasi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert