Chelsea kjöldró Wolves í senni hálfleik

Noni Madueke fagnar marki sínu ásamt Wesley Fofana.
Noni Madueke fagnar marki sínu ásamt Wesley Fofana. AFP

Chelsea fór illa með Wolves, 6:2, í 2. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag. 

Chelsea er því komið með þrjú stig eftir tvo leiki en Wolves er enn án stiga. 

Staðan var 2:2 í hálfleik en Nicolas Jackson kom Chelsea yfir á annarri mínútu, 1:0. 

Matheus Cunha jafnaði fyrir Wolves á 27. mínútu, 1:1, en Cole Palmer kom Chelsea aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks, 2:1.

Wolves svaraði strax þar sem Norðmaðurinn Jörgen Strand Larsen jafnaði metin undir blálok fyrri hálfleiksins. 

Chelsea gekk á lagið í seinni hálfleik en þá var komið að Noni Madueke. Hann skoraði þrjú mörk í röð, öll eftir sendingu frá Palmer. 

Portúgalinn Joao Félix skoraði síðan sjötta mark Chelsea á 80. mínútu eftir sendingu frá samlanda sínum Pedro Neto, 6:2. 

Chelsea fær Crystal Palace í heimsókn í næstu umferð en Wolves heimsækir Nottingham Forest. 

Joao Félix fagnar marki sínu ásamt Pedro Neto.
Joao Félix fagnar marki sínu ásamt Pedro Neto. AFP/Justin Tallis

Jafntefli í Bournemouth

Bournemouth og Newcastle gerðu þá jafntefli, 1:1, í Bournemouth. 

Marcus Tavernier kom Bournemouth yfir í fyrri hálfleik en Anthony Gordon jafnaði metin í þeim seinni. 

Bournemouth er með tvö stig eftir tvö jafntefli en Newcastle er með fjögur stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert