Á förum frá Arsenal

Eddie Nketiah er á förum frá Arsenal.
Eddie Nketiah er á förum frá Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Knattspyrnumaðurinn Eddie Nketiah er á leiðinni til Crystal Palace frá Arsenal. 

The Athletic greinir frá en Palace mun greiða Arsenal 25 milljónir punda fyrir framherjann en auk þess geta fimm millj­ón­ir bæst við með ár­ang­ur­s­tengd­um greiðslum. 

Nketiah er búinn að vera í leit að nýju félagi í allt sumar en hann var í stóru hlutverki hjá Arsenal fyrri hluta síðasta tímabils, sem og á þar síðustu leiktíð. 

Hann hefur hins vegar lítið spilað með Arsenal í ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert