Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hélt hreinu, varði víti og var maður leiksins í fyrsta keppnisleik sínum fyrir Brentford.
Brentford vann D-deildarlið Colchester United, 1:0, á útivelli í 2. umferð enska deildabikarsins í fótbolta í kvöld.
Hákon Rafn lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Brentford en hann gekk í raðir félagsins í janúar á þessu ári.
Keane Lewis-Potter skoraði sigurmark Brentford undir lok fyrri hálfleiksins en á 82. mínútu fékk Colchester víti.
Á punktinn steig Jack Payne en Hákon varði frá honum.