Dan Burn varnarmaður Newcastle skoraði skrautlegt sjálfsmark í sigri liðsins á Tottenham, 2:1, í þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Harvey Barnes kom Newcastle yfir á 37. mínútu en Burn negldi óvart boltanum upp í þaknetið á eigin neti og jafnaði metin fyrir Tottenham á 56. mínútu.
Þrátt fyrir það vann Newcastle leikinn en Alexander Isak skoraði sigurmarkið eftir góða sókn.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér að neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.