Endurkomusigur Newcastle sem jafnar Arsenal að stigum

Harvey Barnes fagnar sigurmarki Newcastle.
Harvey Barnes fagnar sigurmarki Newcastle. AFP/Justin Tallis

Newcastle kom til baka og vann gegn Wolves, 2:1, í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í Wolverhampton í dag. 

Newcastle er með tíu stig í þriðja sæti líkt og Arsenal sem er í öðru. Wolves er í 18. sæti með aðeins eitt stig. 

Mario Lemina kom Wolves yfir á 36. mínútu, 1:0, sem voru hálfleikstölur. 

Fabian Schär jafnaði metin á 75. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Harvey Barnes sigurmark Newcastle og tryggði liðinu 2:1-sigur. 

Newcastle heimsækir Fulham í næstu umferð en Wolves heimsækir Aston Villa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert