Mount og Højlund snúa aftur

Rasmus Højlund
Rasmus Højlund AFP/Patrick T. Fallon

Rasmus Højlund æfði í dag með Manchester United en hann hefur verið frá vegna meiðsla aftan í læri síðan á undirbúningstímabilinu. Mason Mount æfði einnig eftir aftur eftir meiðsli.

Manchester United mætir Crystal Palace á laugardaginn en síðast þegar liðin mættust á Selhurst Park voru heimamenn miklu sterkari og unnu sanngjarnan 4:0 sigur.

Mount var mikið meiddur á síðasta tímabili en endurkoma hans fjölgar vopnum Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins.

Daninn Højlund fékk treyjunúmer Anthony Martial í sumar en hefur ekki ennþá spilað deildarleik með níuna á bakinu vegna meiðsla í æfingaleik gegn Arsenal í sumar en í sama leik meiddist nýr varnarmaður liðsins, Leny Yoro einnig, en sá ristarbrotnaði í leiknum.

Mason Mount í leik gegn Manchester City í leiknum um …
Mason Mount í leik gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn. AFP/Justin Tallis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert