„Heigulsháttur hjá Haaland“

Gabriel og Erling Haaland elduðu grátt silfur saman í gær.
Gabriel og Erling Haaland elduðu grátt silfur saman í gær. AFP/Paul Ellis

Ian Wright, fyrrverandi knattspyrnumaður og sparkspekingur, var ekki sáttur við framferði Erlings Haalands eftir að Manchester City jafnaði metin í 2:2 í uppbótartíma gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Haaland greip boltann úr markinu eftir að John Stones hafði jafnað metin og kastaði honum í höfuðið á Gabriel, miðverði Arsenal.

„Það eina sem pirraði mig í þessum leik var heigulshátturinn hjá Haaland. Að fleygja boltanum í höfuðið á Gabi þegar hann sér ekki til, þegar Gabi snýr baki í hann.

Við vitum að Gabi myndi horfast í augu við hann. Þetta angraði meira en nokkuð annað í þessum leik. Ég hélt að þú værir meiri maður en þetta,“ sagði Wright í myndskeiði sem hann birti á Instagram-aðgangi sínum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert