Völlurinn á floti og leik Newcastle frestað

Bruno Guimaraes og félagar í Newcastle spila ekki við Wimbledon …
Bruno Guimaraes og félagar í Newcastle spila ekki við Wimbledon annað kvöld. AFP/Andy Buchanan

Leik Newcastle úr úrvalsdeildinni og AFC Wimbledon í C-deildinni í 32-liða úrslitum enska deildabikarsins í fótbolta hefur verið frestað, en leikurinn átti að fara fram annað kvöld.

Vegna mikilla rigninga síðustu daga er völlurinn hjá Wimbledon-liðinu á floti og óleikhæfur. Ekki hefur verið fundinn nýr leiktími.

Næsti leikur Newcastle er því gegn Manchester City á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi laugardag klukkan 11.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert