Eiður Smári sammála rauða spjaldinu (myndskeið)

Eiður Smári Guðjohnsen segir seinna gula spjald Leandro Trossard í leik Manchester City og Arsenal vera rétt ákvörðun hjá Micheal Oliver dómara.

„Dómarar þurfa að svara fyrir sína dómgæslu og ákvarðanatökur og þetta er eftir bókinni“ sagði Eiður Smári í samtali við Hörð Magnússon og Bjarna Guðjónsson í Vellinum á Sjónvarpi Símans í gærkvöld.

Bjarni tók í sama streng en umræðuna og myndband af atvikinu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert