Henderson og Onana hrósað

Völlurinn var á sínum stað í Sjónvarpi Símans í gærkvöldi en í leik Manchester United og Crystal Palace voru það markverðirnir sem stálu senunni.

Dean Henderson átti góðan leik gegn sínum gömlu félögum og Andre Onana átti stórbrotna markvörslu frá Eberechi Eze undir lok leiksins í 0:0 jafntefli liðanna á Selhurst Park í Lundúnum.

„Það gefur mönnum oft byr undir báða vængi að spila gegn gamla félaginu sínu og ætla að sýna það að þeir hafi gert mistök að halda honum ekki hjá Manchester United“, sagði Eiður Smári um Henderson.

Umræðuna og markvörslurnar má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert