Chelsea skoraði sjö

Lucy Bronze og Lauren James skoruðu báðar í gærkvöldi.
Lucy Bronze og Lauren James skoruðu báðar í gærkvöldi. Ljósmynd/Chelsea

Englandsmeistarar Chelsea hafa farið vel af stað í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu en þær sigruðu nýliða Crystal Palace, 7:0, í gærkvöldi.

Chelsea var aðeins 1:0 yfir í hálfleik en markið skoraði Agnes Beever-Jones á 38. mínútu. Enska landsliðskonan Lucy Bronze skoraði svo annað mark Chelsea í upphafi seinni hálfleiks en það var hennar fyrsta mark fyrir liðið.

Lauren James, Nathalie Björn og Catarina Macario skoruðu eitt og Guro Reiten tvö.

Cheslea er með fullt hús stiga og hefur ekki fengið mark á sig í fyrstu tveimur umferðum deildarinnar. Liðið mætir næst Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert