Stjarnan ekki með gegn City

Alexander Isak með boltann í leik með sænska landsdliðinu.
Alexander Isak með boltann í leik með sænska landsdliðinu. AFP/Jonathan Nackstrand

Sænski knattspyrnumaðurinn Alexander Isak er ekki í leikmannahópi Newcastle United sem mætir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn hefst klukkan 11:30 á St. James' Park en Isak getur ekki spilað þar sem hann er tábrotinn.

Isak var markahæsti leikmaður Newcastle á síðasta tímabili með 21 mark í 30 leikjum og á þessu tímabili skorað eitt mark og gefið eina stoðsendingu í fimm leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert