Newcastle marði D-deildarliðið

Fabian Schär, til hægri, skoraði sigurmarkið.
Fabian Schär, til hægri, skoraði sigurmarkið. AFP/Justin Tallis

Úrvalsdeildarliðið Newcastle varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins í fótbolta.

Newcastle lagði þá AFC Wimbledon úr D-deildinni naumlega á heimavelli, 1:0. Fabian Schär skoraði sigurmarkið úr víti í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Leikurinn átti upprunalega að fara fram á heimavelli Wimbledon í síðustu viku en var færður vegna skemmda á heimavelli D-deildarliðsins eftir flóð.

Newcastle mætir Chelsea á heimavelli í 16-liða úrslitum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert