Preston vann glæsilegan 3:0-heimasigur á Watford í ensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn var kærkominn fyrir Preston eftir fjóra leiki í röð í deildinni án sigurs.
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Preston og lék fyrstu 73 mínúturnar.
Preston fór upp í átta stig og 21. sæti deildarinnar með sigirnum. Er liðið nú einu stigi fyrir ofan QPR sem er í síðasta fallsætinu.