„Það eru alltaf væntingar til okkar“

Virgin van Dijk, fyrirliði Liverpool, í leiknum í dag.
Virgin van Dijk, fyrirliði Liverpool, í leiknum í dag. Getty Images/Julian Finney

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna þegar liðið styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sterkum útisigri á Crystal Palace, 1:0.

„Það er erfitt að koma hingað, leikirnir hér síðustu ár hafa verið jafnir. Mér fannst við skora frábært mark en við hefðum getað gert betur í seinni hálfleiknum en við vissum að þeir myndu setja pressu á okkur.“ sagði van Dijk.

Liverpool vörnin hefur staðið vel í upphafi tímabilsins og hefur liðið aðeins fengið á sig tvö mörk í átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni og er van Dijk ánægður með varnarleik liðsins.

„Við höldum áfram að leggja okkur fram, við erum aldrei alveg ánægðir. Í tvígang þurftum við að treysta á Alisson fyrir aftan okkur sem er eitthvað sem við viljum reyna að forðast. Allir leggja sitt af mörkum til að við höldum hreinu,“ sagði van Dijk.

„Það eru alltaf væntingar til okkar en okkur er alveg sama hvað öðrum finnst um okkur. Við reynum að keppa, vinna og ná árangri.“ sagði fyrirliði Liverpool að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka