Ótrúleg stoðsending Mexíkóans (myndskeið)

Raul Jimenez fagnar með liðsfélögum sínum fyrr á leiktíðinni.
Raul Jimenez fagnar með liðsfélögum sínum fyrr á leiktíðinni. AFP/Darren Staples

Raul Jimenez, framherji Fulham, sýndi mögnuð tilþrif í gær þegar hann lagði upp mark fyrir Andreas Pereira í tapi liðsins gegn Manchester City.

Jimenez fékk þá boltann inni á teignum og sendi boltann fyrir markið með frábærri hælspyrnu.

Markið var fyrsta mark leiksins og kom Fulham yfir í leiknum en það dugði ekki til því Manchester City kom til baka og vann leikinn, 3:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert