Vondar fréttir fyrir Liverpool

Alisson Becker verður frá keppni út allan októbermánuð.
Alisson Becker verður frá keppni út allan októbermánuð. AFP/Paul Ellis

Enska knattspyrnuliðið Liverpool verður án brasilíska markvarðarins Alissons út allan októbermánuð. Hann missir af stórum leikjum Liverpool-liðsins.  

Liverpool leikur við Chelsea, Arsenal, Brighton og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og Leipzig og Leverkusen í Meistaradeildinni.

Alisson fór af velli í leik Liverpool og Crystal Palace á laugardag og er ljóst að hann tognaði illa í læri.

Caoimhin Kelleher er varamarkvörður Liverpool. Hann var ekki með gegn Palace vegna meiðsla og kom Tékkinn Vítezslav Jaros inn á fyrir Alisson og hélt hreinu í 1:0-sigri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert