Hollenski knattspyrnumaðurinn Tyrell Malacia mun brátt snúa aftur á völlinn eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Hollenski miðilinn Voetbal International greinir frá að Malacia verði klár í slaginn í fyrsta lagi í lok mánaðar og í síðasta lagi í byrjun nóvember.
Malacia lék ekkert á síðustu leiktíð og hefur verið frá keppni frá því í maí á síðasta ári vegna erfiðra hnémeiðsla.
Hollendingurinn, sem er 25 ára gamall, hefur leikið 22 leiki með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom til félagsins frá Feyenoord í heimalandinu fyrir tveimur árum.