Dani efstur á óskalista Manchester United

Thomas Frank er knattspyrnustjóri Brentford.
Thomas Frank er knattspyrnustjóri Brentford. AFP/Glyn Kirk

Daninn Thomas Frank er efstur á óskalista enska knattspyrnufélagsins Manchester United. 

Erik ten Hag stjóri karlaliðsins er undir mikilli pressu en liðið er með átta stig eftir sjö umferðir og í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 

Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulega arftaka en enskir miðlar greina nú frá því að Daninn Thomas Frank, stjóri Brentford, sé efstur á óskalista Manchester-félagsins. 

Brentford heimsækir Manchester United í ensku deildinni á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert