Japaninn Takehiro Tomiyasu, varnarmaður enska knattspyrnuliðsins Arsenal, er enn einu sinni meiddur.
Mikel Arteta stjóri liðsins sagði frá meiðslum Japanans á blaðamannafundi í dag en hann verður fjarverandi í nokkrar vikur.
Tomiyasu gekk í raðir Arsenal haustið 2021 en hann hefur margoft glímt við meiðsli á tími sínum í Lundúnum.