Arne Slot, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, segir að Chelsea sé erfiðasti mótherji liðsins á tímabilinu hingað til.
Liverpool fær Chelsea í heimsókn í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn en Liverpool-liðið er á toppnum með einu stigi meira en Manchester City og Arsenal.
Slot sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann viðurkenndi að Chelsea yrði stærsta próf Liverpool hingað til.