Ten Hag: Ævintýrasögur og lygar

Erik ten Hag.
Erik ten Hag. AFP/Darren Staples

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, heldur áfram að skjóta á bresku pressuna sem hefur fjallað mikið um það undanfarnar vikur hversu heitt er undir honum.

Ten Hag segir hins vegar allt vera með kyrrum kjörum hjá Manchester United.

„Hávaðinn kemur einungis frá sumum ykkar, sem búa til sögur, ævintýrasögur, og bera lygar á borð. Ég veit að við erum á sömu blaðsíðu hjá þessu félagi.

Ég sagði það fyrir landsleikjahléið. Ég sagði nokkrum fjölda blaðamanna það. Líklega trúðu þeir mér ekki því ég sá fréttirnar. Hér að innan er allt rólegt,“ sagði Hollendingurinn á fréttamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka